Um okkur
Hugmyndin að stofnun Heildar þróaðist jafnhliða vináttu okkar í gegnum djáknastarf, hestamennsku og útivist. Við fundum fyrir því að kallað var eftir sálgæslu út í samfélaginu og því varð af því, eftir tveggja ára undirbúning að við stofnuðum Heild.
Kveikjan að starfsseminni liggur í reynslu okkar af sálgæslu, ráðgjöf, leiðsögn og eftirfylgd sem eru mikilvæg þegar einstaklingar öðlast styrk og nær betri tökum á lífi sínu.
Við lítum svo á að líf hvers einstaklings hafi mikilvæga sögu að segja og byggjum vinnu okkar á þeim grunni.
Hugmyndafræði Heildar byggir á sálgæslufræðunum, aðferðafræði tólf sporanna og fræðikenningum heimspeki-, sálar- og geðlæknisfræða.
|
Guðrún Kristín Þórsdóttir er fædd 1950, gift, þriggja barna móðir og á tvö barnabörn.
Guðrún er sjúkraliði og með B.A. próf í sálarfræði og diploma í hugrænni atferlisfræðnálgun. Hún lauk prófi í djáknafræðum árið 1998 og vígðist til djákna í byrjun árs 1999. Síðan þá hefur hún starfað við djáknaþjónustu. Guðrún er löggiltur leiðsögumaður enda helsta áhugamál hennar að ferðast hvort sem það er á hestbaki, gangandi eða keyrandi. |
Kristín Sigríður Garðarsdóttir er fædd 1956, þriggja barna móðir og á tvö barnabörn.
Kristín er vímuefnaráðgjafi og hefur starfað sem ráðgjafi og meðferðaraðili í 5 ár. Hún lauk námi í guðfræði og vígðist sem djákni 2007 og hefur unnið að verkefnum tengdum sálgæslu. Kristín hefur lokið námi sem dáleiðari (clinical hypnotherapist), Dip.Ch.,FaFDT hjá John Sellars (The hypnosis centre International School of Clinical hypnosis) sjá einnig: www.daleidsla.is. Helstu áhugamál Kristínar eru fjölskyldan, útivist, hestamenska, ljósmyndun og ýmis listsköpun. |
Heild | Laugavegi 59 | 101 Reykjavík | Sími: 445-5552 | Netfang: heild@heild.is

