Hugmyndafræðin
Hugmyndafræði Heildar byggir á sálgæslufræðunum, aðferðafræði tólf sporanna og fræðikenningum heimspeki-, sálar- og geðlæknisfræða og af því leiðir að þjónusta Heildar byggir á þessum fræðum ásamt þekkingu og innsæi.
Heild stendur fyrir ákveðinni sýn á manneskjuna sem anda, sál og líkama, en jafnframt hluta af stærri heild, svo sem samfélaginu og fjölskyldunni.
Nálgun Heildar byggir á því að leiðbeina einstaklingum inn á lífsvettvang sem veitir honum sem mesta farsæld í lífinu og megin markmiðið er að styðja fólk við að leysa vandamál sín eða verkefni á eigin spýtur og benda á leiðir til lausna og sátta
Heild stendur fyrir ákveðinni sýn á manneskjuna sem anda, sál og líkama, en jafnframt hluta af stærri heild, svo sem samfélaginu og fjölskyldunni.
Nálgun Heildar byggir á því að leiðbeina einstaklingum inn á lífsvettvang sem veitir honum sem mesta farsæld í lífinu og megin markmiðið er að styðja fólk við að leysa vandamál sín eða verkefni á eigin spýtur og benda á leiðir til lausna og sátta
Vinnuaðferð Heildar byggir á sporum Heildar til farsældar, sem unnin eru út frá 12 sporum AA samtakanna, Charlotte Kasl, sálfræðings og klínískum fíkniráðgjafi og út frá fræðum Victor E. Frankl læknis, sálkönnuðar og heimspekings.
Sporin tólf til farsældar
Viðurkenning:
- Ég viðurkenni að ég missti stjórn á lífi minu og upplifði tilgangsleysi og tómleika.
- Ég trúi því að æðri máttur geti hjálpað mér að bera meiri ábyrgð á lífi mínu og læra að byggja ekki sjálfsöryggi mitt á öðru fólki, hlutum eða efnum.
- Ég tek þá ákvörðun að treysta æðri mætti og láta vilja minn og líf vera í samræmi við skilning minn á henni (honum).
Umbreyting:
- Ég horfist í augu við sjálfa mig, sjúkdóm minn og meðvirkni.
- Ég viðurkenni fúslega og af hugrekki mistök mín og vandamál í lífinu.
- Ég þakka og fagna þeim styrk og krafti sem æðri máttur hefur veitt mér til að takast á við hugsanir mínar og hegðun.
Uppgjör:
- Ég er tilbúin að láta af hegðun/hugsunum sem hindra mig í að elska sjálfa mig og aðra.
- Ég öðlast traust á eigin dómgreind og viðurkenni fúslega breyskleika mína og mistök gagnvart sjálfum mér og öðrum.
- Ég geri mér grein fyrir að ég ber ábyrgð á eigin lífi. Ég tileinka mér nýjan lífsstíl og finn tilganginn í lífi mínu.
Sátt:
- Ég styrki samband mitt við sjálfa mig og æðri mátt og öðlast styrk til að viðhalda framförum, bata og sátt.
- Ég er minnug þess að farsæld mín er fólgin í því að ég beri umhyggju og virðingu fyrir sjálfri mér og öðrum og minni innri rödd.
- Ég er mikilvæg manneskja í sátt við sjálfa mig og aðra, auk alls sem lifir.
Heild | Laugavegi 59 | 101 Reykjavík | Sími: 4455552 | Netfang: heild@heild.is