Greinar
Hugleiðing (Guðrún Kristín).
Þegar við hlúum að lifandi hlutum og sýnum þeim kærleika þá fá þeir aukna birtu og útgeislun. Blóm er gott dæmi um hvernig jurt dafnar og vex í höndum þess sem er annt um það og sér fegurðina í því. Oft þarf að færa blóm út úr skuggunum.......
Þegar við hlúum að lifandi hlutum og sýnum þeim kærleika þá fá þeir aukna birtu og útgeislun. Blóm er gott dæmi um hvernig jurt dafnar og vex í höndum þess sem er annt um það og sér fegurðina í því. Oft þarf að færa blóm út úr skuggunum.......
Blómið
Ég gróðursetti blóm í mínum glugga
gaman er að horfa á þessa jurt.
Sem ævi sinni hefði eytt í skugga
uns ég kom og fór með hana burt.
Nú plantan litla á sér pott og vini og prýðir sparistofuna hjá mér.
Hún dafnar vel í dagsins bjarta skini
hún dregur að sér athyglina hér.
Það gleymist oft að gleðja þá og hugga
sem geta ekki sjálfir fundið ljós.
Ef pláss er fyrir pott í þínum glugga
þá plantaðu þar einni slíkri rós.
Ljóðið er eftir Þórhall Gauta Bárarson.
----------------------------------------------------------------------------------------------- ----------------------------------------------------------------------------------------------
------------------------------------------------------------------------------------------------
Að takast á við sjálfan sig (Kristín S.)
Oft eru einstaklingar að fara í gegnum tilfinningar sem koma upp vegna erfiðleika og áfalla, svo sem dauðsfall, skilnað, ofbeldi, veikindi, atvinnumissi eða önnur áföll. En sorg, kvíði og þunglyndi eru yfirleitt afleiðingar .........
Í grænum bólstruðum stól:
Um miðjan dag,
sem aðeins hefur fært mér gráan himinn, harðneskjulegt regn,
og tvo bolla af volgu kaffi,
kemurðu til mín með óskir úr heimi Disney
og bíður þess að ég breytist í:
Persónu Houdini íklædda Daniel Boone stíl,
óviðjafnanlegan prins eða viskubrunninn Abraham Lincon.
Hver getur með töfraorðum eða sprota, stórbrotnum anda og ef til vill brosi,
læknað öll vandamál með leifturhraða.
Raunveruleikinn situr ávallt í grænum bólstruðum stól,
elding hefur fallið í nærliggjandi tré.
Í gær leið annar mánuður.
Stundum líður mér óþægilega í þögninni
og ólíkt ímyndunarpersónum þínum,
þá get ég ekki alltaf verið það sem þú sérð í huga þínum.
S.T. Gladding 1973 (þýtt af: K.S.G. 2011).
sem aðeins hefur fært mér gráan himinn, harðneskjulegt regn,
og tvo bolla af volgu kaffi,
kemurðu til mín með óskir úr heimi Disney
og bíður þess að ég breytist í:
Persónu Houdini íklædda Daniel Boone stíl,
óviðjafnanlegan prins eða viskubrunninn Abraham Lincon.
Hver getur með töfraorðum eða sprota, stórbrotnum anda og ef til vill brosi,
læknað öll vandamál með leifturhraða.
Raunveruleikinn situr ávallt í grænum bólstruðum stól,
elding hefur fallið í nærliggjandi tré.
Í gær leið annar mánuður.
Stundum líður mér óþægilega í þögninni
og ólíkt ímyndunarpersónum þínum,
þá get ég ekki alltaf verið það sem þú sérð í huga þínum.
S.T. Gladding 1973 (þýtt af: K.S.G. 2011).
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Hinn lifandi sannleikur - Charlotte Kasl -
í þýðingu Kristínar S. Garðarsdóttur
Sannleikurinn er lifandi og því sífellt að breytast. Með því að lifa í sannleikanum sameinumst við heilindum okkar krafti og kærleika. Sannleikurinn kemur víða fram á leið sinni um líf okkar. Að segja sannleikann um staðreyndir í daglegri tilveru þinni, hvert þú fórst, hversu miklu þú eyddir, hversu stóran eða hversu marga fiska þú veiddir, virðist i sjálfu sér einfalt, en margir eiga erfitt með þetta. Þeir ýkja oft eða smækka lífssögu sína með því að taka á sig stóran krók frá sannleikanum.
Sannleikurinn felst í því að fínstilla þarfir okkar og langanir. Hvað bíómynd viltu virkilega sjá? Hvar viltu virkilega að fara að borða? Með hverjum viltu raunverulega verja tíma þínum með? Hvað kveikir áhuga þinn? Einbeittu þér að líkama þínum og tilfinningum, hvernig skilaboð er líkami þinn að gefa frá sér. Veittu því athygli þegar þú ert þreytt, svöng, sorgmædd eða hamingjusöm. Spenna í brjóstinu gæti gefið til kynna sorg og hnútur í hálsi tengst oft sorg.
Til þess að vera móttækileg fyrir sannleikanum er mikilvægt að vera vakandi yfir áhuga okkar og viðbrögðum við mismunandi aðstæður. Þetta kallar á það að líta á okkur sjálf óttalaust. Spurðu sjálfan þig: "Sagði ég þetta svo hann fyndi til sektarkenndar? "Hefi ég haldið aftur af gremjunni svo hún fari ekki í uppnám eða yfirgefi mig?‘‘ Hvers konar starf eða lífsaðstæður eru bestar fyrir mig? Í hverskonar umhverfi fæ ég á tilfinninguna að mér finnist ég tilheyra? Að lifa í sannleika, þýðir einnig að vera meðvitaðri um aðra menningu, trúarbrögð, venjur, viðhorf og félagslega hefð. Þetta felur í sér að opna augun fyrir óréttlæti, mismunun, fátækt og flóknum tengingum þar á milli.
Við erum hluti af stærri heild – sameinandi orka sem lykur utan um hugann, tilfinningar og líðan. Hvert er samband okkar við sannleikann? Þegar við vorum yngri, leiddi þörf okkar fyrir ást, umhyggju og vernd foreldra okkar til þess að við þróuðum djúpa eðlishvöt um það sem náði athygli okkar og viðurkenningu, eða varði okkur hugsanlega fyrir reiði eða ofbeldi foreldranna. Ef þú vissir fyrir víst að þú myndir verða flengd/ur fyrir að viðurkenna að þú braust eitthvað, væri rökrétt að ljúga til að vernda þig. Ef þér var strítt eða þú uppnefnd væluskjóða þegar þú varst í uppnámi, gætir þú hafa sett upp grímu glaðværðar og hamingu. Þetta er innra ferli sem hefur þróast um langt skeið yfir í vanahegðun við ákveðnu viðbragði til þess að lifa af.
Það að horfast í augu við sannleikann þýðir að spyrja sjálfan sig spurninga er varða fullyrðingar okkar, skoðanir og hugmyndir sem hafa haft áhrif á okkar sanna sjálf og í framhaldi af því að æfa nýja hegðun. Hér er dæmi um ótta sem þú gætir skoðað: Ef þú telur að þú sért að fremja glæp gegn yfirvaldi, þarftu að spyrja: ,,Á þessi ótti rætur í fortíðinni eða er hann hér og nú?'' ,,Er ég að þykjast vera hamingjusöm/ur þegar ég virkilega er reið, vegna þess að foreldrar mínir refsuðu mér fyrir að vera reið?'' ,,Hvað myndi gerast ef ég léti einhvern sjá gremju mína eða sársauka? ,,Er það virkilega svo hættulegt í þessum aðstæðum? "
Ef þú óttast tap eða höfnun þegar þú setur mörk eða þú segir já þegar þú vilt segja nei, þá þarftu að umlykja þig með fólki sem styður heiðarleika þinn. Ef þú óttast að tjá óskir þínar, óttast að koma einhverjum í uppnám, varnarstöðu eða reiðiham, þá skaltu skoða ástæður þær sem liggja að baki. Er þetta gamall vani sem þjónaði tilgangi sínum í æsku. Hvernig kemur þessi skortur á ákveðni í veg fyrir að þú sýnir styrkleika þína, þannig að þú finnir að þú sért við stjórn í lífi þínu? Hluti þess að lifa í heiðarleika er að muna að stundum fáum við já og stundum nei.
Í byrjun þegar þú ert að læra að lesa í sannleika þinn, er ágætt að ímynda sér orku- eða birtumæli innra með þér, sem sýnir gildi á kvarða frá einum(lágt) upp í tíu(hátt). Takið eftir hvaða manneskjur og aðstæður leiða til tilfinninga birtu innra með þér eða aukna orku, aukna ánægju eða umhyggju. Taktu einnig eftir því hvaða aðstæður eru það sem gefa þér þá tilfinningu að þér finnst þú vera þreytt og útbrunnin. Þá er skaltu taka til fótanna til þeirra sem hlúa að þér, gefa þér neista sem hjálpar þér í átt að lífsgleði og krafti.
Það tekur stöðuga og endurtekna viðleitni að muna að raddirnar sem sífell ýta á þig að trúa því að þú sért sjálfselsk, illgjörn og óalmennileg, eru gömul forrit úr fortíðinni. Taktu eftir þeim en taktu þau ekki alvarlega. Ávinningurinn af því að lifa í sannleika, er sá, að þú færð meira persónulegt vald, meiri ánægju og kærleika í lífi þínu.
Mikilvægt er að hafa í huga að með því að lifa í lífsins sannleika, muntu færast frá ótta, kvíða og eftirsjá, yfir til lífs þar sem hrifning, forvitni og fögnuður ríkir. Líkami þinn mun slaka á þegar þú stígur út úr gömlum skilyrðingum sjálfsins, inn í flæði lífsins, þar sem uppsprettu innri hamingju og friðar er að finna.