Post Title. 02/19/2012
Sæl og blessuð ... Langaði aðeins að tala um námskeiðið hjá John Sellers dáleiðari frá Bretlandi sem ég er á núna. Ég hafði aldrei verið sérstaklega áhugasöm um dáleiðslu, en eitthvað kveikti í mér þegar ég frétti að þessi dáleiðari væri staddur á Íslandi og væri með námskeið. Það er ótrúlega margt sem hefur komið mér á óvart á þessu námskeiði og ég hef lært ótrúlega mikið á þessum þremur dögum. Fyrstu tvo dagana var ég svo örmagna af þreytu og verkjum að ég lagðist í rúmið og svaf. á þriðja degi reis ég svo upp og var ótrúlegaorkumikil og án. Eitt langar mig að nefna núna, en það er hvernig hægt er að takast á við kvíða með ákveðinni aðferð sem kallast spinning. Ég hlakka mikið til að nota þá aðferð með mínum skjólstæðingum. Á morgun langar mig að takast á við kóngulóarfælni sem ég hef haft frá barnæsku, ef könguló skríður á mér, þá öskra ég svo hátt, að amk 3 nágrannar eru búnir að hringja á neyðarlínuna. þessu verður að linna og þó fyrr hefði verið. En verst er að það er ekki komið sumar ennþá - svo þið fáið ekkert að vita hvernig til tókst fyrr en með vorinu. En samt ...... 1 Comment | AuthorKristín dags.Categories |
RSS Feed