Heild ráðgjafa- og sálgæslusetur
leitast við að veita von og kraft í leit einstaklingsins að tilgangi.
Ráðgjafa- og sálgæslusetrið leggur áherslu á sálgæslu, ráðgjöf og leiðsögn aðallega fyrir konur, sem eru að ganga í gegnum erfiða lífsreynslu og breytingar í lífi sínu. Heild býður upp á persónulega þjónustu með einstaklingsviðtölum, fræðslu og námskeiðum.
Stofnendur Heildar eru djáknarnir Kristín Sigríður Garðarsdóttir og Guðrún Kristín Þórsdóttir, sjá nánar.....
Heild er staðsett að Laugavegi 59, 4 hæð. Lyfta er í húsinu. Hafa má samband í síma 445-5552, í gsm síma 697-3864 hjá Kristínu og gsm 699-5905 hjá Guðrúnu eða hafa samband í gegnum tölvupóst: hafa samband.
Ef aðstæður eru þess eðlis að einstaklingar vegna veikinda, fötlunar eða áfalla komast ekki á staðinn, er möguleiki að komast að samkomulagi um aðrar lausnir.
http://www.facebook.com/heild.is
Heild | Laugavegi 59 | 101 Reykjavík | Sími: 4455552 | Netfang: heild@heild.is
